Árið er 1860 og systkinin Robyn og Zouga Ballantyne eru um borð í bandarísku seglskipi. Eftir áralanga fjarveru er ferðinni heitið á æskuslóðir í Afríku. Þar hyggjast þau leita uppi föður sinn og halda áfram linnulausri baráttu hans gegn þrælahaldi. Á meðan á siglingunni stendur uppgötvar Robyn að skipstjórinn aðhefst hluti sem stríða stranglega gegn lífsgildum hennar og við það vakna blendnar tilfinningar innra með henni.
Þegar á land er komið tekur við ósnortin náttúrufegurð, margslungnar persónur og óvænt atburðarás, sem mun reyna á fjölskylduböndin og móta framtíðina. Tilvalin lesning fyrir aðdáendur Kim Follett og Clive Cussler. Ballantyne fjölskyldan Hin upprunalega Ballantyne bókasería samanstendur af fjórum skáldsögum sem spanna árin 1860-1980. Sögurnar gerast í Suður-Afríku og fjalla um ævintýri hinnar áhrifamiklu Ballantyne fjölskyldu milli kynslóða.
Bækurnar draga upp raunsæja mynd af þeim sannsögulegu atburðum sem áttu sér stað í heimsálfunni á þessum tíma, svo sem þrælahaldi, arðráni og fleiri afleiðingum nýlendustefnu Breta. Hrífandi frásagnir og spennandi sögufléttur sem fara með lesandann í eftirminnilegt ferðalag. Metsöluhöfundurinn Wilbur Smith fæddist í Norður-Ródesíu í Afríku árið 1933. Smith sérhæfði sig í sögulegum skáldskap með ævintýralegu ívafi og var þekktur fyrir einstaklega grípandi frásagnarstíl.
Hann gaf út 49 bækur á ferli sínum sem voru þýddar á fjölmörg tungumál og seldust í milljónum eintaka.