Þegar Vegagerðin hættir að viðhalda veginum heim að bænum og mjólkurbíllinn kemur ekki lengur eftir nytinni úr kúnum - og Flokkurinn svíkur gefin loforð - lendir Dýrmundur Dýrmundarson Dýrfjörð í pólitískri sálarkreppu með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Uppgjafabóndi á mölinni, þrasgjarn þrætudraugur, lætur gamminn geisa um sveitunga sína og samfélagið, stoltur fulltrúi ættar sinnar og átthaga.