Óður morðingi gengur laus, en enginn hefur áttað sig á því enn. Lögreglumaðurinn Ólafur er ekki að rannsaka málið. Hann er heldur ekki þunglyndur, ekki ennþá í það minnsta. Vinnufélagar hans eru að vinna í því. Og þeim fer hratt fjölgandi vegna þess að fólkið biður um það. Dagný er á yfirborðinu nauða-ómerkileg skrifstofublók sem vinnur hjá tilgangslausri ríkisstofnun sem er bara til vegna þess að það varð aldrei neitt hrun árið 2008.
Það þarf að koma öllu þessu auka-skattfé í lóg einhvernvegin.