SOLDES

Jusqu'à -70% sur une sélection d'articles*

Kristján Franklín Magnús

Dernière sortie

Nótt yfir hafi

Frá meistara sögulegra spennusagna kemur Nótt yfir vatni sem gerist í upphafi seinni heimsstyrjaldar og fjallar um flóttafólk frá Bretlandi á hættulegu ferðalagi yfir Atlantshafið.Í sömu mund og Bretland lýsir yfir stríði á hendur Þýskalandi nasistanna fer Pan American Clipper, best útbúna flugvél heims, af stað í sitt síðasta flug til New York, athvarf þeirra sem vilja flýja átökin í Evrópu. Farþegarnir um borð hafa hver sína ástæðu til að yfirgefa Bretland.
Meðal þeirra eru enskur hefðarmaður sem flýr með fjölskyldu sína og formúu í skartgripum; þýskur vísindamaður á flótta frá nasistum; morðingi sem snýr til baka í fylgd FBI; kona sem flýr stjórnsaman eiginmann; og útsmoginn þjófur staðráðinn í að halda þýfi sínu. Ferðin yfir Atlantshafið verður sífellt flóknari fyrir farþegana sem eru föst hvert með öðru í vélinni. Ekki síst þegar í ljós kemur ráðabrugg sem gæti orðið til þess að þau tapi öll lífinu.Sjálfur segir höfundurinn að þetta sé með léttari bókum hans, þó hún sé sannarlega byggð á sönnum atburðum og haldi lesanda hugföngnum frá fyrstu síðu.
Ken Follett er breskur metsöluhöfundur. Af þeim 37 titlum sem hann hefur ritað hafa selst yfir 195 milljón eintök á 40 tungumálum í fleiri en 80 löndum. Hann fæddist í Cardiff í Wales árið 1949 og lærði heimspeki á sínum yngri árum áður en hann fór að starfa sem blaðamaður. Árið 1978 skaust hann upp á stjörnuhimininn með bók sinni Nálarauga (Eye of the Needle). Hann hefur ritað mikið af sögulegum skáldsögum, en ein sú vinsælasta er bókin Pillars of the Earth, sem var gerð að sjónvarpsþáttaröð árið 2010.
Ken dáir tónlist næstum jafn mikið og bækur og spilar gjarnan á bassagítar. Hann býr í Herefordshire í Englandi með konu sinni Barböru, en þau eiga saman fimm börn, sex barnabörn og þrjá labradora. Hann er virkur í ýmiss konar góðgerðastarfsemi og var formaður Dyslexia Action í áratug.
Offrir maintenant
Ou planifier dans votre panier

Les livres de Kristján Franklín Magnús

Maðurinn frá St. Pétursborg
Ken Follett, Kristján Franklín Magnús, Hersteinn Pálsson
Audiobook
8,99 €
Lífsháski í Ljónadal
Ken Follett, Kristján Franklín Magnús, Ingibjörg Bergþórsdóttir
Audiobook
8,99 €
Nálarauga
Ken Follett, Kristján Franklín Magnús, Hersteinn Pálsson
Audiobook
8,99 €
Módelið
Lars Saabye Christensen, Kristján Franklín Magnús, Sigrún Kristín Magnúsdóttir
Audiobook
8,99 €
Elling: Fugladansinn
Ingvar Ambjørnsen, Kristján Franklín Magnús, Einar Ólafsson
Audiobook
8,99 €
Æfintýr æsku minnar
H.c. Andersen, Kristján Franklín Magnús, Steingrímur Thorsteinsson
Audiobook
6,99 €
Elling: Paradís í sjónmáli
Ingvar Ambjørnsen, Kristján Franklín Magnús, Einar Ólafsson
Audiobook
6,99 €
Póstkortamorðin
James Patterson, Liza Marklund, Kristján Franklín Magnús, Guðni Kolbeinsson
Audiobook
8,99 €
Hálfbróðirinn
Lars Saabye Christensen, Kristján Franklín Magnús, Sigrún Kristín Magnúsdóttir
Audiobook
8,99 €
Fyrirsætumorðin
Maxine Paetro, James Patterson, Magnea J. Matthíasdóttir, Kristján Franklín Magnús
Audiobook
8,99 €
Kínversku naglamorðin
Robert van Gulik, Kristján Franklín Magnús, Anna María Hilmarsdóttir
Audiobook
8,99 €
Fyrstur til að deyja
James Patterson, Kristján Franklín Magnús, Harald G. Haraldsson
Audiobook
8,99 €